1760 - Embættið landlæknir, landfysikus, var stofnað á Íslandi með úrskurði Danakonungs, hliðstætt embætti danskra stiftslækna og varð Bjarni Pálsson fyrsti landlæknir Íslands.
1793 - Borgin Mainz lýsti yfir stofnun sjálfstæðs lýðveldis, þess fyrsta á þýskri grundu. Það leystist þó upp eftir aðeins fjóra mánuði
1793 - Orrustan við Neerwinden: Austurríkismenn hröktu Frakka frá Niðurlöndum
1871 - 25 karlar og tvær konur hvöttu til þess að stofnaður yrði kvennaskóli í Reykjavík í ávarpi til Íslendinga. Kvennaskólinn í Reykjavík tók til starfa 1874.
1971 - Handritamálið: Hæstiréttur Danmerkur kvað upp úrskurð sem gerði dönsku ríkisstjórninni kleift að afhenda Íslendingum handrit sem geymd höfðu verið í Árnasafni í Kaupmannahöfn.
1978 - Fyrrum forsætisráðherra Pakistan, Zulfikar Ali Bhutto, var dæmdur til dauða fyrir að hafa fyrirskipað morð á pólitískum andstæðingi.
1985 - Ástralska sápuóperan Grannar hóf göngu sína á Seven Network.
1990 - Tólf málverkum og kínverskum vasa var stolið úr Isabella Stewart Gardner Museum í Boston. Þetta var stærsti listaverkaþjófnaður í sögu Bandaríkjanna.