2011 - Hersveitir Alassane Ouattara héldu inn í höfuðborg Fílabeinsstrandarinnar til að setja forsetann, Laurent Gbagbo, af eftir að hann hafði neitað að viðurkenna tap í forsetakosningum árið áður.
2012 - Fyrsta danska hraðbrautin sem reist var sem einkaframkvæmd, Sønderborg-hraðbrautin, var opnuð ári fyrr en áætlað var.
2013 - Fyrsta tilvikið þar sem fuglaflensuveiran H7N9 smitaðist í mann greindist í Kína.
2014 - Alþjóðadómstóllinn úrskurðaði að hvalveiðar Japana í Suður-Íshafi gætu ekki talist í vísindaskyni og ættu ekki að fá fleiri leyfi.