6. janúar - Olíuflutningaskipið Sanchi lenti í árekstri við flutningaskip með þeim afleiðingum að það kviknaði í því. Skipið rak logandi um Austur-Kínahaf í 8 daga og olli gríðarlegri mengun.
13. janúar - Naqeebullah Mehsud var myrtur af lögreglumönnum í Karachi í Pakistan. Morðið leiddi til víðtækra mótmæla gegn því að lögregla dræpi fólk án dóms og laga.
24. janúar - Kínverskir vísindamenn sögðu frá því í tímaritinu Cell að þeim hefði tekist að einrækta apa með líkamsfrumukjarnaflutningi.
27. janúar - Talíbanar stóðu fyrir sprengjuárás í Kabúl með bílsprengju í sjúkrabíl. Yfir 100 létust í sprengingunni.
28. janúar - Forsetakosningar voru haldnar í Finnlandi. Sauli Niinistö, sitjandi forseti, vann endurkjör í fyrstu umferð með rúm sextíu prósent atkvæða.
31. janúar - Tunglmyrkvi átti sér stað en daginn áður var Tunglið ofurmáni vegna nálægðar við jörðu og blámáni (annað fullt tungl í mánuði).
Febrúar
6. febrúar - SpaceX-geimflaug af gerðinni Falcon Heavy fór í jómfrúarflug sitt frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni.
26. febrúar - Jarðskjálfti sem mældist 7,5 reið yfir Papúu Nýju-Gíneu með þeim afleiðingum að yfir 160 létu lífið.
Mars
4. mars - Rússneski fyrrum leyniþjónustumaðurinn Sergej Skripal varð ásamt dóttur sinni fyrir eitrun vegna taugaeitursins Novitsjok á heimili sínu í Salisbury á Englandi.
9. mars - Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, þáði boð leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-un, um leiðtogafund til að ræða kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu.
11. mars - Ríkisstjórn Kína samþykkti stjórnarskrárbreytingu sem afnam hámarkstíma leiðtoga í embætti og gerði Xi Jinping að „æviráðnum forseta“.
12. mars - US-Bangla Airlines flug 211 hrapaði í Nepal með þeim afleiðingum að 51 fórst.
19. mars - Síðasti karlkyns norræni hvíti nashyrningurinn lést í dýragarði í Kenýa. Það með er sú undirtegund ólífvænleg.
23. mars - 25 ára gamall Marokkóbúi myrti 4 og særði 15 í röð skotárása í Carcassonne og Trèbes í Frakklandi. Hann var á endanum skotinn til bana af lögreglu.
24. mars - March for Our Lives-gangan gegn byssuofbeldi og með strangari skotvopnalöggjöf var haldin um allan heim.
25. mars - Flugfélagið Qantas hóf fyrstu beinu flugin án áningar milli Heathrow á Englandi og Perth í Ástralíu með flugvélum af gerðinni Boeing 787 Dreamliner.
25. mars - Eldsvoðinn í Kemerovo: 64 létust í eldsvoða í verslunarmiðstöð í rússnesku borginni Kemerovo.
26. mars - Yfir 100 rússneskir ríkiserindrekar í 20 löndum voru reknir vegna eitrunar Sergej og Juliu Skripal.
28. mars - Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-un, fór í opinbera heimsókn til Kína til fundar við Xi Jinping. Þetta var í fyrsta sinn sem hann fór úr landi eftir að hann tók við embætti árið 2011.
28. mars - 78 létust í eldsvoða í fangageymslum lögreglustöðvarinnar í Valencia (Venesúela).
Apríl
2. apríl - Bandaríkjastjórn lýsti því yfir að viðskiptahættir Kínverja ógnuðu þjóðaröryggi Bandaríkjanna.
5. apríl - Handtökuskipun var gefin út á hendur fyrrum forseta Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva, eftir að hæstiréttur ákvað að fella niður habeas corpus vegna spillingar.
19. apríl - Raúl Castro lét af embætti sem forseti Kúbu. Miguel Díaz-Canel tók við og varð þar með fyrsti forseti Kúbu í rúm fjörutíu ár sem ekki er af Castro-ætt.
23. apríl - Trukkaárásin í Torontó: 10 létust og 16 særðust þegar 25 ára gamall maður ók trukk á hóp fólks í Torontó í Kanada.
27. apríl - Kim Jong-un fór yfir hlutlausa beltið og til Suður-Kóreu til fundar við Moon Jae-in. Þetta var í fyrsta sinn sem norðurkóreskur leiðtogi fór yfir beltið.
27. apríl - Leikjakerfið Nintendo Labo var sett á markað.
Maí
3. maí - Spænsku skæruliðasamtökin ETA lýstu því formlega yfir að þau hygðust leysa sig upp eftir 40 ára baráttu.
3. maí - Eldgosið í Puna 2018: Hraun flæddi yfir stórt svæði í héraðinu Puna á Hawaii.
5. maí - Ómannaða könnunarfarið InSight var sent í átt til Mars.
8. maí - Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að Bandaríkin hygðust draga sig út úr kjarnorkusamkomulaginu við Íran.
9. maí - Kosningabandalagið Pakatan Harapan vann sögulegan sigur á Barisan Nasional í þingkosningum í Malasíu.
6. júlí - Shoko Asahara og sex aðrir meðlimir japönsku hryðjuverkasamtakanna Aum Shinrikyo voru teknir af lífi.
6. júlí - Bandarískir tollar á kínverskar innflutningsvörur að andvirði 34 milljarða dala tóku gildi. Kínverjar ásökuðu Bandaríkjamenn um að hrinda af stað stærsta viðskiptastríði sögunnar.
20. október - Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að Bandaríkin myndu binda enda á Samning um meðaldrægar kjarnaeldflaugar frá 1987 vegna meintra brota Rússa.
23. október - Hong Kong–Zhuhai–Maká-brúin, lengsta brú heims yfir sjó, var opnuð í Kína.
29. október - 189 fórust þegar Lion Air flug 610 hrapaði undan ströndum Jövu.
Nóvember
4. nóvember - Þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði frá Frakklandi var haldin í Nýju-Kaledóníu þar sem tillagan var felld með 56,4% atkvæða.
5. nóvember - Tvö bandarísk könnunarför náðu innstu og ystu mörkum sólkerfisins nánast samtímis. Voyager 2 náði sólvindsmörkum þar sem áhrif aðdráttarafls sólar verða engin og Parker Solar Probe náði mestu sólnánd á braut sinni.
26. nóvember - Könnunarfarið InSight lenti á yfirborði Mars.
27. nóvember - Úkraínudeilan: Úkraína lýsti yfir gildistöku herlaga eftir að rússneska strandgæslan hertók þrjú skip úkraínska flotann sem höfðu reynt að sigla inn í Asovshaf um Kertssund.
28. nóvember - Kínverski vísindamaðurinn He Jiankui lýsti því yfir á ráðstefnu í Hong Kong að hann hefði breytt erfðamengi tvíbura sem fæddust fyrr í sama mánuði.
31. desember - Hrunið í Magnitogorsk 2018: Íbúðablokk í Magnitogorsk í Tsjeljabinsk í Rússlandi hrundi vegna gassprengingar með þeim afleiðingum að 39 létust.