11. mars - Lög voru sett um happdrættislán ríkissjóðs til fjáröflunar fyrir vega- og brúargerð um Skeiðarársand. Þremur árum síðar var vegurinn opnaður.
18. mars - Hæstiréttur Danmerkur kvað upp úrskurð, sem gerði dönsku ríkisstjórninni kleift að afhenda Íslendingum handritin, sem geymd höfðu verið í Árnasafni í Kaupmannahöfn.
30. maí - Marineráætlunin: Bandaríkin sendu könnunarfarið Mariner 9 á loft.
31. maí - Útlagastjórn í Indlandi lýsti formlega yfir stofnun ríkisins Bangladess.
Júní
6. júní - Mannaða geimfarinu Sojús 11 var skotið á loft.
6. júní - Fimmtíu létust við árekstur farþegaþotu af gerðinni McDonnell Douglas DC-9 og herþotu af gerðinni McDonnell Douglas F-4 nálægt Duarte í Kaliforníu.
29. ágúst - Eldur kom upp í kirkjunni á Breiðabólstað á Skógarströnd vegna gastækja og brann hún til kaldra kola. Á sama tíma kviknaði í bíl sóknarprestsins.
9.-13. september - Attica-óeirðirnar áttu sér stað í fangelsinu í Attica í New York-fylki. Að lokum réðist Bandaríski þjóðvörðurinn inn í fangelsið. 42 létust, þar af tíu gíslar.
1. október - Skemmtigarðurinn Walt Disney World var opnaður í Flórída.
9. október - TF EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar brotlenti á Rjúpnafelli. Flugmaður og farþegi sluppu án meiðsla og höfðu gengið 40 kílómetra frá slysstaðnum er þeir fundust.
4. desember - Montreux-spilavítið í Sviss brann til grunna eftir slys sem varð á tónleikum Frank Zappa. Lag Deep Purple, „Smoke on the Water“, fjallar um atvikið.