2. janúar-26. mars - Vegna kreppunnar buðu söfnuðirnir í Reykjavík upp á ókeypis máltíðir í Franska spítalanum. Einnig fengu fátæk heimili mjólkursendingar. Starfinu var haldið áfram frá 8. október og fram í febrúar næsta árs.
9. nóvember - Gúttóslagurinn í Reykjavík. Áheyrendur hlupu upp bæjarstjórnarfundi í Góðtemplarahúsinu vegna ákvörðunar bæjarstjórnar að lækka laun í atvinnubótavinnu.