15. júlí - Svíar unnu lokasigur á kósakkaher falska Dímítríj 2. í orrustunni við Tver.
21. júlí - Jakob 1. Englandskonungur skipaði skoska biskupinn George Montgomery yfir nefnd sem átti að gera öll lönd í Ulster upptæk vegna Jarlaflóttans og byggja þau mótmælendum.
8. desember - Fyrsti lessalur bókasafnsins Biblioteca Ambrosiana í Mílanó opnaði almenningi.
29. desember - Jesúítar stofnuðu trúboðsstöðina San Ignacio Guazú í Paragvæ og fengu leyfi Spánarkonungs til að halda þar 3-8000 guaraníindíánum frá þrælahaldi.
Ódagsettir atburðir
Síða úr Astronomia Nova eftir Johannes Kepler sem sýnir þrjár eldri kenningar um hreyfingar himintungla.