7. janúar - Flugher Júgóslavíu skaut niður þyrlu með þremur eftirlitsmönnum frá Evrópusambandinu.
8. janúar - George H. W. Bush Bandaríkjaforseti varð alvarlega veikur í kvöldverði í Japan. Hann kastaði upp í kjöltu Kiichi Miyazawa forsætisráðherra og féll svo í yfirlið.
27. janúar - Bandaríska verslunarkeðjan Macy's óskaði eftir gjaldþrotaskiptum.
30. janúar - Stórréttarhöldin í Palermó: Áfrýjunardómstóll í Róm staðfesti dóma yfir 360 af 474 ákærðum í samtals 2.665 ára fangelsisvist.
31. janúar - Þjóðhöfðingjar 12 fastalanda öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og flestra hinna aðildarlandanna hittust í New York-borg til að ræða nýja heimsskipan í kjölfar endaloka Kalda stríðsins.
Febrúar
Sjúkrabílar flytja lík íbúa Khojaly.
1. febrúar - Bandaríska strandgæslan hóf að flytja flóttamenn frá Haítí aftur til heimalands síns.
25. febrúar - Fjöldamorðin í Khojaly: Hundruð íbúa Khojaly í Nagornó-Karabak voru myrtar af armenskum hersveitum þegar þeir reyndu að flýja bæinn.
29. febrúar - Reykjavíkurborg hélt upp á það að íbúafjöldinn hefði náð eitt hundrað þúsund manns. Í tilefni af því var öllum 100 ára Reykvíkingum og eldri boðið til veislu í Höfða.
Mars
Stimpill sem staðfestir þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Suður-Afríku.
1. mars - Íbúar Bosníu og Hersegóvínu samþykktu sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Bosníu-Serbar sniðgengu atkvæðagreiðsluna.
1. mars - Fyrstu fórnarlömb Bosníustríðsins féllu, serbneskur faðir brúðguma og rétttrúnaðarprestur í Sarajevó.
11. mars - Fyrrum ritstjóri spænska dagblaðsins El Diario La Prensa, Manuel de Dios Unanue, var myrtur á veitingastað í New York. Hann hafði fengið hótanir frá kólumbískum eiturlyfjahringjum.
16. apríl - Olíuflutningaskipið Katina P sigldi í strand skammt frá Mapútó í Mósambík með þeim afleiðingum að sextíu þúsund lítrar af olíu fóru í sjóinn.
16. apríl - Uppreisnarmenn steyptu forseta Afganistan, Mohammad Najibullah, af stóli og tóku hann höndum sem leiddi til borgarastyrjaldar.
4. júní - Elsta málverk sem boðið hefur verið upp á Íslandi var selt á uppboði í Reykjavík. Það er talið vera eftir séra Hjalta Þorsteinsson (1665 - 1750) og sýnir biskupshjónin Þórð Þorláksson og Guðríði Gísladóttur.
5. ágúst - Eiríkur Kristófersson, fyrrverandi skipherra á skipum Landhelgisgæslunnar, varð 100 ára. Hann varð þjóðhetja í fyrsta þorskastríðinu vegna framgöngu sinnar.
10. ágúst - Ríkisstjórn Ítalíu hóf harðar aðgerðir gegn sikileysku mafíunni með því að senda 7000 hermenn til Sikileyjar og flytja 100 mafíuforingja í öryggisfangelsi á sardinísku eyjunni Asinara.
10. ágúst - Ríkisstjórn Bretlands bannaði vopnaða sambandssinnahópinn Ulster Defence Association sem hafði starfað löglega í 10 ár.
18. ágúst - Maður grunaður um fíkniefnasölu var handtekinn í Mosfellsbæ og fundust 1,2 kílógrömm af kókaíni í bíl hans. Í aðgerð lögreglunnar varð lögreglumaður fyrir mjög alvarlegu slysi.
18. ágúst - Forsætisráðherra Bretlands, John Major, tilkynnti um flugbannsvæðin yfir Írak til verndar Kúrdum.
20. ágúst - Krifast-vegtengingin milli Kristansund og meginlandsins í Noregi var opnuð.
21. ágúst - Umsátrið um Ruby Ridge hófst í Idaho í Bandaríkjunum.
7. september - Forseti Tadsikistan, Rahmon Nabiyev, neyddist til að segja af sér eftir margra vikna átök.
7. september - Vopnaðir menn hliðhollir Oupa Gqozo einræðisherra í Ciskei í Suður-Afríku hófu skothríð á fylgismenn Afríska þjóðarflokksins með þeim afleiðingum að 28 létust.
22. september - Fyrstu Ólympíuleikum andlega fatlaðra lauk í Madrid. Íslendingar voru sigursælir í sundi og fékk íslenskt sundfólk alls 21 verðlaun á leikunum, þar af 10 gull. Sigrún Huld Hrafnsdóttir fékk fleiri verðlaun á leikunum en nokkur annar keppandi.
22. október - Síldveiðiskipið Hólmaborg landaði 1350 tonnum af síld á Eskifirði og var þetta stærsti síldarfarmur sem landað hafði verið úr einu skipi.
24. nóvember - 141 lést þegar flugvél frá China Southern Airlines hrapaði í Kína.
24. nóvember - Elísabet 2. lýsti þessu ári sem annus horribilis vegna brunans í Windsor-kastala og hinna ýmsu hneykslismála sem vörðuðu konungsfjölskylduna.
24. nóvember - Tölvuleikurinn Sonic the Hedgehog 2 fyrir Sega Genesis kom út á sama tíma um allan heim.
25. nóvember - Sambandsþing Tékkóslóvakíu samþykkti skiptingu landsins í tvennt frá og með 1. janúar 1993.
12. desember - Um 12.000 manns fórust þegar jarðskjálfti reið yfir eyjuna Flóres í Indónesíu.
13. desember - Vígt var nýtt orgel í Hallgrímskirkju í Reykjavík og er það stærsta hljóðfæri á Íslandi og vegur um 25 tonn. Í því eru 5200 pípur og hæð þess er um 17 metrar. Smíði þess kostaði um 100 milljónir króna.
15. desember - Mani pulite: Bettino Craxi, aðalritari ítalska sósíalistaflokksins, fékk dómskvaðningu fyrir spillingu og brot gegn lögum um fjármögnun stjórnmálaflokka.
15. desember - Fyrsta plata Dr. Dre, The Chronic, kom út í Bandaríkjunum.
16. desember - Þjóðarráð Tékklands samþykkti nýja stjórnarskrá Tékklands.
18. desember - Kim Young-sam var kjörinn forseti Suður-Kóreu.