1831 - Fyrsta bankarán í sögu Bandaríkjanna átti sér stað þegar City Bank of New York var rændur 245.000 dölum.
1870 - Jón Ólafsson ritstjóri birti kvæðið „Íslendingabrag“ í blaði sínu Baldri. Kvæðið var mjög meinyrt í garð Dana og hlaut Jón síðar dóm fyrir birtingu þess.
1895 - Lumière-bræður tóku upp fyrstu kvikmynd sögunnar: Sortie des Usines Lumière à Lyon.
1908 - Bríet Bjarnhéðinsdóttir varð fyrst kvenna til að taka til máls á fundi í bæjarstjórn Reykjavíkur. Hún mælti fyrir tillögu um sundkennslu fyrir stúlkur. Tillagan var samþykkt.