26. janúar - Þúsundir fórust þegar jarðskjálfti reið yfir Gujarat á Indlandi.
Febrúar
Skilti sem varar fólk við að fara um heiðarlönd í Norður-Yorkshire vegna gin- og klaufaveikinnar í Bretlandi.
1. febrúar - Síðdegisþáttur Bylgjunnar, Reykjavík síðdegis, fór í loftið.
1. febrúar - Abdel Basset al-Megrahi, líbískur hryðjuverkamaður, var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að sprengja farþegaþotu frá PanAm yfir Lockerbie í Skotlandi árið 1988 með þeim afleiðingum að 270 manns fórust.
20. febrúar - Sænska gervihnettinum Odin var skotið á loft frá Síberíu.
25. febrúar - Leiðtogi EZLN í Mexíkó, Marcos undirherforingi, hóf göngu til Mexíkóborgar til stuðnings réttindum frumbyggja.
26. febrúar - Nice-sáttmálinn var undirritaður af 15 aðildarríkjum Evrópusambandsins.
28. febrúar - Great Heck-lestarslysið: Tvær járnbrautarlestar og bíll rákust saman í Norður-Yorkshire á Bretlandi sem leiddi til dauða 10 manna.
Mars
Hintze Ribeiro-brúin hrunin.
4. mars - Hintze Ribeiro-slysið: Gömul steinsteypt brú í Entre-os-Rios, Portúgal, hrundi með þeim afleiðingum að 59 létust.
5. mars - Talíbanastjórnin í Afganistan lét sprengja merk Búddalíkneskin í Bamyan í tætlur vegna þess að þau væru óguðleg. Þessum verknaði var mótmælt um víða veröld.
6. mars - Tvær bandarískar konur fórust þegar tveggja hreyfla vél þeirra hrapaði í hafið skammt vestur af Vestmannaeyjum.
7. mars - Sprenging í flugeldaverksmiðju í Fanglin í Kína varð tugum barna að bana. Börnin voru neydd til að búa til flugelda í skólanum.
7. mars - Sjö manns voru dæmd fyrir peningaþvætti í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þetta var í fyrsta skipti sem dæmt var eftir lögum um peningaþvætti á Íslandi.
10. mars - Samtökin Free Software Foundation Europe voru stofnuð.
17. mars - Kosning um framtíð Reykjavíkurflugvallar fór fram í Reykjavík. Aðeins 37% borgarbúa tóku þátt þannig að kosningin var ekki bindandi. Naumur meirihluti vildi að flugvöllurinn yrði fluttur.
20. mars - Stærsti fljótandi olíuborpallur heims, Petrobras 36, sökk við strendur Brasilíu.
23. mars - Rússneska geimstöðin Mír hrapaði til jarðar í Kyrrahafið úti fyrir ströndum Nýja Sjálands.
23. mars - Glímusambandið World Wrestling Federation keypti keppinaut sinn, World Championship Wrestling, fyrir 7 milljón Bandaríkjadali.
25. mars - Uppreisnin í Makedóníu 2001: Makedóníuher hóf aðgerðir gegn uppreisnarsveitum albanskra aðskilnaðarsinna, Þjóðfrelsishersins.
Apríl
Dennis Tito, Talgat Musabajev og Júrí Batúrín um borð í Sojús TM-32.
1. apríl - Bandarísk njósnaflugvél lenti í árekstri við kínverska orrustuflugvél. Kínverski flugmaðurinn fannst aldrei en 10 manna áhöfn bandarísku flugvélarinnar nauðlenti í Kína, var handtekin og haldið í 10 daga.
7. maí - Serbneskir þjóðernissinnar réðust á hóp fólks sem hugðist leggja hornstein að endurbyggingu Ferhadija-moskunnar í Banja Luka í Bosníu og Hersegóvínu.
18. júlí - 60 vagna járnbrautarlest fór út af teinunum í göngum í Baltimore í Bandaríkjunum. Eldur kviknaði og stóð í marga daga og varð til þess að miðborg Baltimore lokaðist.
19. júlí - Breski stjórnmálamaðurinn Jeffrey Archer var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir að bera ljúgvitni.
20. júlí - Gríðarleg mótmæli áttu sér stað þegar fundur 8 helstu iðnríkja heims hófst í Genúa á Ítalíu. Einn mótmælandi, Carlo Giuliani, var skotinn til bana af lögreglumanni.
23. júlí - Málamiðlunartillaga til að bjarga Kýótóbókuninni var samþykkt á loftslagsráðstefnu í Bonn.
23. júlí - Þing Indónesíu setti forsetann Abdurrahman Wahid af vegna vanhæfni og spillingar.
18. september - Miltisbrandsárásirnar 2001: Bréf með miltisbrandsgróum voru send til sjónvarpsfréttastofanna ABC News, CBS News, NBC News og dagblaðanna New York Post og National Enquirer.
21. september - Góðgerðatónleikarnir America: A Tribute to Heroes voru sendir út af 35 sjónvarpsstöðvum.
27. september - Blóðbaðið í Zug: Friedrich Leibacher myrti 14 og framdi síðan sjálfsmorð í Zug í Sviss.
Október
Rhino-aðgerðin: Bandarískar herþyrlur varpa 200 fallhlífarhermönnum út yfir Afganistan.
1. október - Skæruliðar réðust á þinghúsið í Srinagar í Kasmír og myrtu 38.
1. október - Mikil sprenging varð í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi. Eldur kom upp en engan sakaði. Talið er að skammhlaup í gömlum rafmagnstöflum hafi valdið sprengingunni.
18. desember - Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá olíufélögunum fjórum: Ker hf. (áður Olíufélagið hf.), Olíuverzlun Íslands hf., Skeljungur hf. og Bensínorkan ehf. sem leiddi að dómsmáli um samráð olíufélaganna.