28. ágúst - Alþingiskosningar 1844: Fyrstu Alþingiskosningarnar voru haldnar. Tæp 1000 íbúar voru í Reykjavík en aðeins eignamenn máttu kjósa og voru kjósendur aðeins 24.
24. maí - Samuel F. B. Morse sendi fyrsta símskeytið á milli bandaríska þinghússins í Washington og járnbrautarstöðvar í Baltimore í Maryland. Í skeytinu stóðu orðin „What hath God wrought“.
6. júní - Kristileg samtök ungra manna, KFUM, stofnuð í London.
29. júní - Joseph Smith, stofnandi mormónakirkjunnar var myrtur ásamt bróður sínum.