23. maí - Cranmer lýsti hjónaband Hinriks konungs og Katrínar af Aragon ógilt en þar sem Klemens VII páfi hafði áður neitað að samþykkja ógildingu leit Katrín svo á að þau væru enn gift, allt til dauðadags.
1. júní - Cranmer krýndi Önnu Boleyn drottningu Englands. Í framhaldi af því bannfærði Klemens VII bæði Hinrik 8. og Önnu.
3. desember - Ívan grimmi tók við stórfurstadæminu í Moskvu eftir lát föður síns, Vassilíj 3. Hann var þá þriggja ára.