19. desember - Her jakobíta undir stjórn Karls Stúart (Bonnie Prince Charlie) beið ósigur fyrir her undir stjórn hertogans af Cumberland í orrustunni við Clifton Moor. Það er síðasti bardagi sem háður hefur verið á enskri grund.
Pétur krónprins Rússlands giftist Katrínu frænku sinni, sem síðar varð þekkt undir nafninu Katrín mikla.
Peter von Musschenbroken, sem starfaði við Leyden-háskólann í Hollandi, fann upp svokallaða Leydenkrukku sem gat geymt mikið magn rafhleðslu.
Elsta leikhús í Madrid, Teatro Español, var reist.
Fædd
18. febrúar - Alessandro Volta, ítalskur eðlisfræðingur (d. 1827).