18. janúar - 66 létust í óeirðum vegna trúarhátíðar sjíamúslima, ashar, í bæjunum Basra og Nassiriya í Írak.
20. janúar - Francis Joyon setti heimsmet í því að sigla einsamall á seglbát umhverfis jörðina eftir 57 daga siglingu og bætti fyrra met um fjórtán daga.
2. mars - Her Kólumbíu elti skæruliða FARC inn í Ekvador og drap einn foringja þeirra, Raúl Reyes. Í kjölfarið slitu Ekvador og Venesúela stjórnmálasamband við Kólumbíu.
6. mars - Palestínumaður hóf skothríð í skóla í Jerúsalem og myrti 8 nemendur.
6. mars - Heimsmarkaðsverð á olíu náði hápunkti, 105,96 dalir fatið, á bandaríska hrávörumarkaðnum.
6. mars - 54 létu lífið í bílasprengjuárás í Bagdad.
1. apríl - Stærsta rán í sögu Danmerkur var framið í peningageymslu í Glostrup. Ræningjarnir komust undan með 62 milljónir.
3. apríl - Fyrrum forsætisráðherra Kosóvó, Ramush Haradinaj, var sýknaður af ákærum um stríðsglæpi gegn serbneskum íbúum Kosóvó fyrir Alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum fyrir fyrrum Júgóslavíu. Mörg vitni gegn honum höfðu verið myrt eða horfið í aðdraganda réttarhaldanna.
4. apríl - Franska seglskipinu Le Ponant var rænt af sjóræningjum við strönd Sómalíu með 30 farþega um borð.
5. apríl - Mótmæli gegn hernámi Kína í Tíbet áttu sér stað þar sem Ólympíukyndillinn var borinn um stræti London.
6. apríl - Samgönguráðherra Srí Lanka, Jeyaraj Fernandopulle, lést ásamt 11 öðrum í hryðjuverkaárás í Kólombó.
10. apríl - Í Nepal fóru fram kosningar til stjórnlagaþings til að semja nýja lýðveldisstjórnarskrá.
11. apríl - Nintendo gaf út leikinn Mario Kart Wii.
22. ágúst - Fyrsti þjóðgarður Danmerkur, Nationalpark Thy, var formlega opnaður.
24. ágúst - Ísland vann silfurverðlaun í handknattleik karla á Ólympíuleikunum í Peking. Þetta var talinn einn stærsti íþróttaviðburður í íslenskri íþróttasögu.
24. ágúst - Danmarks Nationalbank tók yfir rekstur Roskilde Bank.
25. ágúst - 68 fórust þegar flugvél frá Iran Aseman Airlines hrapaði í Kirgistan.
22. nóvember - Búsáhaldabyltingin: Eftir að á bilinu 9-11.000 manns mótmæltu ríkisstjórninni friðsamlega á Austurvelli, mótmælti nokkur hundruð manna hópur því fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu, að mótmælandi hafði verið tekinn fastur kvöldið áður. Mótmælin fóru úr böndunum, mótmælendur reyndu að ryðja sér leið inn í lögreglustöðina en voru stöðvaðir með piparúða. Fimm þurftu að leita sér aðhlynningar á slysavarðstofu og erlendis var fjallað um atburðinn eins og óeirðir.
24. nóvember - Um 10.000 mótmælendur kröfðust afsagnar forsætisráðherra Taílands, Somchai Wongsawats, í Bangkok.
25. nóvember - Grænland hélt þjóðaratkvæðagreiðslu um aukna sjálfsstjórn landsins. Yfir 75% kjósenda greiddu atkvæði með aukinni sjálfsstjórn.
26. nóvember - Meðlimir íslömsku öfgasamtakanna Lashkar-e-Taiba hófu fjögurra daga herferð skot- og sprengjuárása í Mumbai sem leiddu 164 til dauða.
6. desember - Óeirðir hófust í Grikklandi eftir að gríska lögreglan skaut 15 ára ungling til bana.
7. desember - Danski athafnamaðurinn Stein Bagger gaf sig fram við lögreglu eftir að hafa verið eftirlýstur af Interpol.
10. desember - Fyrstu lýðræðislegu kosningarnar voru haldnar á krúnunýlendunni Sark sem varð þar með síðasta svæðið í Evrópu þar sem lénskerfi var lagt niður.