Enski skipstjórinn John Braye (Jóhann Breiði) reisir virki á Járngerðarstöðum við Grindavík og bannaði Íslendingum að selja Þjóðverjum fisk.
Diðrik af Minden, fógeti, lýsti Englendinga í Grindavík réttdræpa.
11. júní - Grindavíkurstríðið: Um nóttina gerðu Íslendingar og Þjóðverjar árás á virki og skip Englendinga í Grindavík, drápu fimmtán (þar á meðal John Braye), tóku átta höndum og lögðu hald á skipið Peter Gibson.
Friðrik 1. Dankonungur blekkti Kristján 2. til að koma til Danmerkur og hét honum friðhelgi en sveik loforðið, lét handtaka frænda sinn og varpa honum í dýflissu.