28. janúar - Ítalskir sérsveitarmenn handtóku fimm meðlimi Rauðu herdeildanna í Padúu og frelsuðu bandaríska herforingjann James Lee Dozier sem samtökin héldu sem gísl.
23. febrúar - Með þjóðaratkvæðagreiðslu á Grænlandi var ákveðið að landið stæði utan Evrópusambandsins.
25. febrúar - Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp þann dóm að kennarar sem refsuðu nemendum með hýðingum gegn vilja foreldra þeirra brytu gegn mannréttindasáttmálanum.
1. júlí - Grandmaster Flash og The Furious Five gáfu út smáskífuna „The Message“ sem var fyrsta platan til að útskýra hvernig er að lifa í fátrækarhverfinu.
2. júlí - Larry Waters flaug í 4.900 metra hæð yfir Long Beach í Kaliforníu í garðstól með helíumblöðrur festar við hann.
2. júlí - Sprengja sprakk í geymsluhólfi á Aðaljárnbrautarstöðinni í Osló með þeim afleiðingum að 19 ára stúlka lést. Átta dögum síðar fannst önnur ósprungin sprengja í öðru hólfi. Átján ára piltur reyndist standa á bak við tilræðin.
3. júlí - Fjárfestingarfélagið Kuben í eigu hljómsveitarinnar ABBA og framleiðandans Stikkan Anderson keypti fyrirtækin Monark og Stiga.
31. júlí - Tvær rútur með skólabörn og þrír bílar lentu í árekstri við Beaune í Frakklandi með þeim afleiðingum að 53 létust, þar af 44 börn. Þetta var mesta umferðarslys í sögu Frakklands.
Ágúst
Hermenn úr frönsku útlendingaherdeildinni fylgjast með flutningi PLO-manna frá Beirút.
20. ágúst - Átján manna hópur kleif Eldey í fyrsta sinn síðan 1971. Í hópnum var ein kona, Halldóra Filippusdóttir, og var hún fyrst kvenna til að klífa eyjuna. Eldey var fyrst klifin árið 1894.
3. september - Ítalski herforinginn Carlo Alberto Dalla Chiesa var myrtur, ásamt eiginkonu sinni og bílstjóra, af ítölsku mafíunni í Palermó.
13. september - Grace Kelly fékk heilablóðfall meðan hún ók bifreið sinni. Bíllinn hrapaði niður fjallshlíð. Hún lést á sjúkrahúsi daginn eftir.
14. september - Forseti Líbanon, Bachir Gemayel, var myrtur.
16. september - Blóðbaðið í Shabra og Shatila hófst þegar Líbanski framvörðurinn réðist inn í flóttamannabúðir í Beirút og myrti milli 762 og 3500 manns.
19. september - Scott Fahlman stakk upp á notkun broskallsins.
1. október - Fyrsta tölublað tímaritsins Veru kom út á Íslandi.
1. október - Morgunblaðið birti fyrstu símsendu litmyndina frá opnun fjármálamiðstöðvar í London og voru þá rúmlega 23 ár frá því að sama blað birti fyrstu símsendu myndina hér á landi.
1. október - Fyrsti geislaspilarinn, Sony CDP-101, kom á markað í Japan.
30. október - Landssöfnunin „Þjóðarátak gegn krabbameini“ lagði fram þrettán milljónir króna til handa Krabbameinsfélaginu og var það mun meira en áður hafði safnast í slíkum söfnunum.