29. janúar - Brenda Ann Spencer, þá sextán ára, hóf skothríð í grunnskóla í San Diego með þeim afleiðingum að tveir starfsmenn létust og nokkrir nemendur særðust. Ástæðan sem hún gaf var að henni líkaði ekki við mánudaga, sem varð til þess að írska hljómsveitin The Boomtown Rats gerði lagið „I Don't Like Mondays“ skömmu síðar.
23. febrúar - Nýfasistarnir Franco Freda, Giovanni Ventura og Guido Giannettini voru dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir blóðbaðið á Piazza Fontana tíu árum áður. Á síðari dómstigum var þeim sleppt vegna skorts á sönnunargögnum.
Mars
Sadat, Carter og Begin takast í hendur eftir undirritun friðarsamninga 26. mars
14. mars - Farþegaþota af gerðinni Hawker Siddeley Trident frá flugumferðarstjórn Kína hrapaði á verksmiðju með þeim afleiðingum að 200 létust.
20. mars - Ítalski blaðamaðurinn Mino Pecorelli var myrtur. Talið var að háttsettir stjórnmálamenn hefðu fyrirskipað morðið. Giulio Andreotti var dæmdur fyrir morðið í undirrétti árið 2002 en sýknaður í áfrýjunarrétti árið eftir.
20. mars - Sænski leyniþjónustumaðurinn Stig Bergling var handtekinn í Ísrael grunaður um njósnir fyrir Sovétríkin og framseldur til Svíþjóðar.
28. mars - Bilun í kælibúnaði í Three Mile Island-kjarnorkuverinu í Pennsylvaníu leiddi til þess að mikið af geislavirku gasi fór út í umhverfið. Þetta er talið vera versta kjarnorkuslys í sögu Bandaríkjanna.
28. mars - Minnihlutastjórn breska verkamannaflokksins undir stjórn James Callaghan féll á vantrausti vegna misheppnaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um heimastjórn í Skotlandi og Wales.
1. apríl - Barnastöðin Pinwheel Network breytti nafni sínu í Nickelodeon og hóf útsendingar á ýmsum kapalkerfum Warner.
1. apríl - Austurrískir lögreglumenn handtóku lærlinginn Andreas Mihavecz, lokuðu hann inni í fangaklefa og gleymdu honum svo. Hann fannst aftur fyrir tilviljun 17 dögum síðar og hafði lifað af með því að sleikja raka af veggjum klefans.
20. maí - Íslenskt mál, þáttur í umsjón Gísla Jónssonar, hóf göngu sína í Morgunblaðinu.
21. maí - Miklar verðhækkanir á bensíni urðu til þess að bifreiðaeigendur á Íslandi mótmæltu og þeyttu flautur í tvær mínútur.
25. maí - Flugvél frá American Airlines hrapaði á O'Hare-flugvelli í Chicago með þeim afleiðingum að allir um borð (271 manns) létust og 2 á jörðu niðri.
26. maí - Ísrael lét Egyptalandi aftur eftir borgina Arish á Sínaískaga í samræmi við Camp David-samkomulagið.
Júní
Olíuslysið í Campeche-flóa
Júní - McDonald's setti barnaboxið Happy Meal fyrst á markað.
5. júlí - Þingið á Mön, Tynwald, hélt upp á 1000 ára afmæli sitt.
5. júlí - Altaaðgerðin: Mótmælendur gegn vatnsaflsvirkjununum Alta og Kautokeino komu upp búðum í Stilla í Noregi.
9. júlí - Bílasprengja eyðilagði bíl nasistaveiðaranna Serge og Beate Klarsfeld í Frakklandi. Skilaboð sem sögð voru frá ODESSA-samtökunum lýstu ábyrgð á hendur þeim.
11. júlí - Skylab, fyrsta geimstöð NASA, hóf að falla til jarðar eftir 6 ár og 2 mánuði á braut um jörðu.
27. ágúst - Louis Mountbatten lávarður lést ásamt þremur öðrum í sprengjuárás Írska lýðveldishersins við Sligo á Írlandi. Sama dag voru 18 breskir hermenn drepnir í fyrirsát við Narrow Water Castle á Norður-Írlandi.
27. ágúst - Fabrizio De André og Dori Ghezzi var rænt af sardinísku mafíunni. Þeim var sleppt gegn lausnargjaldi í desember sama ár.
September
Ljósmynd af hringjum Satúrnusar tekin af Pioneer 11
1. september - Bandaríska geimfarið Pioneer 11 komst fyrst allra geimfara í návígi við Satúrnus.
7. september - Íþróttastöðin ESPN hóf útsendingar um kapalkerfi í Connecticut í Bandaríkjunum.
20. nóvember - Hertaka stórmoskunnar: Hópur íslamskra uppreisnarmanna gegn stjórn Sádí-Arabíu hertók Masjid al-Haram, helgasta stað múslima í Mekka.
21. nóvember - Ayatollah Khomeini hélt því fram í útvarpsfrétt að Bandaríkjamenn hefðu hertekið moskuna í Mekka. Í kjölfarið réðist múgur á bandaríska sendiráðið í Islamabad í Pakistan.
26. nóvember - Flugvél í pílagrímaflugi frá Pakistan International Airlines hrapaði við flugvöllinn í Jeddah, Sádí-Arabíu, með þeim afleiðingum að 156 farþegar létust.
15. desember - Davíð Scheving Thorsteinsson keypti bjór í fríhöfninni við komu til landsins, en var meinað að hafa hann með sér. Þetta leiddi til rýmkunar á reglum um kaup á bjór í fríhöfninni.