Fallhlífarstökkvarar lenda á ólympíuhringjunum í Grenoble 11. febrúar.
1. febrúar - Víetnamstríðið: Víet Kong-liðinn Nguyễn Văn Lém var tekinn af lífi með skammbyssu af suðurvíetnamska lögregluforingjanum Nguyễn Ngọc Loan. Ljósmynd af aftökunni varð fræg um allan heim og jók andstöðu almennings við stríðið.
4. febrúar - Breski síðutogarinn Notts County strandaði á Snæfjallaströnd. 18 manna áhöfn var bjargað af varðskipi. Annar síðutogari, Ross Cleveland fórst í Ísafjarðardjúpi sama kvöld og aðeins einn komst lífs af.
21. febrúar - Sænski menntamálaráðherrann, Olof Palme, tók þátt í mótmælum gegn Víetnamstríðinu í Stokkhólmi og sagði í ræðu að stríðið væri ógn við lýðræðið.
16. mars - Víetnamstríðið: Fjöldamorðin í My Lai. Bandarískir hermenn myrtu alla íbúa í heilu þorpi þrátt fyrir að þar væru engir karlmenn á hermennskualdri.
19. mars - Nemendur við Howard-háskóla í Washington D.C. hófu vikulöng mótmæli gegn Víetnamstríðinu og Evrópumiðuðu námi.
22. mars - Daniel Cohn-Bendit ásamt sjö öðrum námsmönnum hertók stjórnarskrifstofur Nanterre-háskóla.
24. mars - Aer Lingus flug 712 hrapaði við Wexford með þeim afleiðingum að 61 farþegi og áhöfn fórust.
28. mars - Brasilíski menntaskólaneminn Edson Luís de Lima Souto var skotinn til bana af lögreglu fyrir að mótmæla matarverði í mötuneyti skólans.
Apríl
Bandarískar saumakonur hlusta á útvarpsútsendingu frá útför Martin Luther King 9. apríl.
2. ágúst - Yfir 200 létust í Casiguran-jarðskjálftanum á Filippseyjum.
8. ágúst - Richard Nixon og Spiro Agnew voru tilnefndir frambjóðendur flokksins til forseta og varaforseta á Landsþingi Repúblikana í Miami Beach, Flórída.
11. ágúst - Síðasta ferð gufuknúinna lesta á vegum British Rail var farin með farþega milli Liverpool og Carlisle.
18. ágúst - Yfir 100 fórust þegar tvær rútur runnu út í Hida-á í Japan vegna úrhellisrigningar.
20. ágúst - Vorið í Prag var barið niður af 200.000 hermönnum og 5.000 skriðdrekum frá Varsjárbandalaginu.
22. ágúst - Youth International Party stóð fyrir mótmælum gegn Víetnamstríðinu við Landsþing Demókrata í Chicago.
7. september - 95 fórust þegar Air France flug 1611 hrapaði í Miðjarðarhafið.
9. september - Helstu leiðtogar bandarísku stúdentahreyfingarinnar voru handteknir eftir mótmælin í Chicago.
12. september - Danski boxarinn Tom Bogs vann sinn fyrsta Evrópumeistaratitil með sigri á Lothar Stengel.
13. september - Albanía dró sig út úr Varsjárbandalaginu vegna innrásarinnar í Tékkóslóvakíu.
17. september - D'Oliveira-hneykslið: Marylebone Cricket Club hætti við að leika í Suður-Afríku þegar Suður-Afríkumenn neituðu að samþykkja litaða leikmanninn Basil D'Oliveira á vellinum.
21. september - Ómannaða sovéska geimfarið Zond 5 sneri aftur til jarðar með lífverur um borð.
22. september - Egypska hofið Abu Simbel var opnað almenningi fjórum árum eftir að vinna við flutning þess hófst.
26. september - Ritskoðun leikrita var afnumin í Bretlandi. Söngleikurinn Hárið var frumsýndur á West End daginn eftir.
27. september - Marcelo Caetano varð forsætisráðherra Portúgals.
Október
Fyrsta beina útsendingin úr geimnum frá Apollo 7.
2. október - Blóðbaðið í Tlatelolco: Hundruð námsmanna voru myrt af hernum í kjölfar mótmæla í Tlatelolco í Mexíkóborg.
3. október - Juan Velasco Alvarado rændi völdum í Perú.
5. október - Lögregla á Norður-Írlandi barði á mótmælendum í friðsamri mannréttindagöngu í Derry. Atvikið vakti hneyksli víða um heim og varð upphafið að tveggja daga uppþotum í Derry.
8. október - Bandaríkjaher og her Suður-Víetnam hófu Sealords-aðgerðina í ósum Mekong.
11. október - NASA sendi mannaða geimfarið Apollo 7 á braut um jörðu.
11. október - Herforingjar undir stjórn Omar Torrijos steyptu lýðræðislega kjörinni stjórn Arnulfo Arias í Panama af stóli.
16. október - Rodney-uppþotin hófust í Kingston á Jamaíku eftir að aðgerðasinninn Walter Rodney var bannaður frá landinu.
16. október - Bandarísku hlaupararnir Tommie Smith og John Carlos heilsuðu með krepptum hnefa eftir að hafa unnið gull- og bronsverðlaun í 200 metra spretthlaupi.
12. nóvember - Leoníd Brezhnev réttlætti innrás Sovétríkjanna í Tékkóslóvakíu með vísun til Brezhnev-kenningarinnar.
15. nóvember - Víetnamstríðið: Commando Hunt-aðgerðin hófst með sprengjuárásum á Ho Chi Minh-slóðina í Laos.
17. nóvember - British European Airways tók farþegaþotuna BAC One-Eleven í notkun.
17. nóvember - Heiðuhneykslið: NBC hóf að sýna kvikmyndina Heiðu nokkrum mínútum fyrir lok leiks Oakland Raiders og New York Jets með þeim afleiðingum að þúsundir reiðra fótboltaáhugamanna hringdu í skiptiborð sjónvarpsstöðvarinnar.
20. nóvember - Farmington-námuslysið olli dauða 78 manna.
30. nóvember - Landssamtök norskra Sama voru stofnuð.
Desember
„Jarðarupprás“, tekin úr geimfarinu Apollo 8.
9. desember - Douglas Engelbart stóð fyrir „móður allra sýnidæma“ á ráðstefnu tölvunarfræðinga í San Francisco þar sem hann sýndi bæði oN-Line System, fyrsta kerfið sem notaðist við tengitexta, og tölvumúsina, á fundi sem um 1000 manns sóttu.
10. desember - Stærsta rán í sögu Japans, 300 milljón jena ránið, átti sér stað í Tókýó.
22. desember - Mao Zedong mælti með því að menntuð borgaræska Kína færi í endurmenntun í sveitum landsins, sem var upphafið að „niður í sveitina“-hreyfingunni.
24. desember - Bandaríska geimfarið Apollo 8 komst á braut um tunglið og sá myrku hlið tunglsins í fyrsta sinn. Geimfarinn William Anders tók hina frægu ljósmynd „Jarðarupprás“.