17. júlí - Tvær göngubrýr á Hyatt Regency-hótelinu í Kansas City hrundu með þeim afleiðingum að 114 manns létust.
17. júlí - Ísraelsher gerði sprengjuárás á byggingar í Beirút með þeim afleiðingum að 300 óbreyttir borgarar létust. Aðgerðin var fordæmd um allan heim.
1. október - Ökumenn og farþegar í framsæti bifreiða voru skyldaðir til þess að spenna öryggisbeltin við akstur á vegum. Um leið var heimilað að aka reiðhjólum á gangstéttum og stígum.
2. október - Breska hljómsveitin The Police gaf út breiðskífuna Ghost in the Machine.