Bob Dylan
Bob Dylan að spila á rafmagnsgítar.
Dylan árið 2010
Fæddur
Robert Allen Zimmerman

24. maí 1941 (1941-05-24) (82 ára)
Duluth, Minnesota, BNA
Önnur nöfn
  • Shabtai Zisel ben Avraham
  • Elston Gunnn
  • Blind Boy Grunt
  • Bob Landy
  • Robert Milkwood Thomas
  • Tedham Porterhouse
  • Lucky Wilbury
  • Boo Wilbury
  • Jack Frost
  • Sergei Petrov
  • Zimmy
Störf
  • Söngvari
  • lagahöfundur
  • listamaður
  • rithöfundur
Ár virkur1959–í dag[1]
Maki
  • Sara Lownds (g. 1965; sk. 1977)
  • Carolyn Dennis (g. 1986; sk. 1992)
Börn6
VerðlaunNóbelsverðlaunin í bókmenntum (2016)
Tónlistarferill
Stefnur
Hljóðfæri
  • Rödd
  • gítar
  • munnharpa
  • hljómborð
Útgefandi
Áður meðlimur íThe Traveling Wilburys
Vefsíðabobdylan.com
Undirskrift
Bob Dylan (1963)

Bob Dylan (fæddur Robert Allan Zimmerman; 24. maí 1941) er bandarískur tónlistarmaður.

Robert Allen Zimmerman fæddist inn í fjölskyldu af gyðingaættum sem var búsett í Duluth, Minnesota. Hann breytti síðar nafni sínu í Bob Dylan. Dylan sagði frá því seinna að það hafi verið vegna áhrifa frá velska ljóðskáldinu Dylan Thomas. Bob Dylan er söngvari, tónlistarmaður, lagahöfundur og skáld. Hann hefur haft mikil áhrif á tónlist seinustu 5 áratuga. Hann er þekktur fyrir texta sína á fyrri hluta feril síns, en þeir fjölluðu flestir um stjórnmál, þjóðfélagsádeilu, sálfræði og bækur sem hafa haft áhrif á hann. Dylan kemur fram á tónleikum með gítar, munnhörpu og hljómborð ásamt ýmsum tónlistarmönnum. Hann hefur unnið sér inn fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal 10 Grammy-verðlaun og var tekinn inn í Rock and Roll frægðarhöllina (Hall of Fame) árið 1988. Hann var á lista Time Magazine yfir 100 mestu áhrifavalda 20. aldarinnar.[2]

Breiðskífur

Safnplötur

Tilvísanir

  1. Erlewine, Stephen Thomas (12. desember 2019). „Bob Dylan biography“. AllMusic. Sótt 6. janúar 2020.
  2. Cocks, Jay (14. júní 1999). „The Time 100: Bob Dylan“. shrout.co.uk/TIME. Sótt 5. október 2008.

Tenglar