1. september - Geysiharður jarðskjálfti, 7.9 á Richter, skók Tokyo og Yokohama í Japan. Um 140.000 manns létust í skjálftanum og miklum eldsvoða sem fylgdi í kjölfar hans. Þúsundir létust einnig í kjölfarið í óeirðum þar sem Kóreubúar í Japan voru myrtir.
15. nóvember - Óðaverðbólgan í Þýskalandi náði hámarki; fyrir einn Bandaríkjadollar fengust 4.200.000.000.000 þýsk mörk. Ríkisstjórn Stresemanns felldi gamla markið úr gildi og tók upp nýjan gjaldmiðil.