9. febrúar - Bankarán var framið í útibúi Iðnaðarbankans í Breiðholti í Reykjavík. Maður með lambhúshettu rændi rúmlega þrjú hundruð þúsund krónum. Hann hefur aldrei náðst.
11. mars - Vélbáturinn Hellisey frá Vestmannaeyjum sökk og fórust allir nema einn maður, Guðlaugur Friðþórsson, sem náði að synda alla leið í land, um fimm kílómetra langa leið.
13. mars - Grænlandssáttmálinn um útgöngu Grænlands úr Evrópubandalaginu var undirritaður.
14. mars - Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, særðist ásamt þremur öðrum í skotárás í Belfast.
16. mars - Yfirmanni CIA í Beirút, William Francis Buckley, var rænt af Samtökunum heilagt stríð.
11. maí - Jörðin var í beinni línu milli sólarinnar og Mars. Því var hægt að fylgjast með skugga jarðarinnar færast yfir yfirborð Mars. Næst gerist þetta 10. nóvember 2084.
13. maí - Sprenging varð í flotastöð sovéska hersins í Severomorsk. Hundruð manna fórust og tveir þriðju allra flugskeyta sovéska norðurflotans eyðilögðust.
26. maí - Sextán létust í metangassprengingu í vatnshreinsistöð í Abbeystead í Lancashire á Englandi.
27. maí - Skyndiflóð urðu í Tulsa í Oklahóma. Fjórtán létust.
27. maí - Svíar sigruðu Englendinga í fyrsta Evrópumótinu í knattspyrnu kvenna.
4. september - Síðasta hrina Kröfluelda hófst, sú níunda í röðinni og var hún kraftmest og stóð í hálfan mánuð. Í þessari hrinu runnu 24 km² af hrauni.
18. september - Joe Kittinger komst fyrstur yfir Atlantshafið í loftbelg.
20. september - 24 létust þegar bílasprengja á vegum Hezbollah sprakk við bandaríska sendiráðið í Beirút.
26. september - Bretland og Alþýðulýðveldið Kína undirrituðu fyrsta samkomulagið um að Kína tæki yfir stjórn Hong Kong árið 1997.
29. september - 366 handtökutilskipanir voru gefnar út á Ítalíu á grundvelli framburðar mafíuforingjans Tommaso Buscetta.
Október
Grand Hotel í Brighton morguninn eftir sprengjutilræðið.
4. október - Öll aðildarfélög BSRB hófu verkfall sem lamaði íslenskt samfélag nær algerlega.
5. október - Hjónin Eiríkur J. Eiríksson og Kristín Jónsdóttir gáfu Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi bókasafn sitt með um 30 þúsund bindum. Er þetta talin mesta bókagjöf á Íslandi.
11. október - Kathryn D. Sullivan varð fyrsta bandaríska konan sem fór í geimgöngu frá geimskutlunni Challenger.
12. október - Brighton-hóteltilræðið: 5 létust og 11 særðust þegar meðlimir Írska lýðveldishersins reyndu að myrða Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands.
19. október - Pólska leynilögreglan rændi kaþólska prestinum Jerzy Popiełuszko. Lík hans fannst 11 dögum síðar.
20. október - Ríkisstjórn Bettino Craxi á Ítalíu gaf út Berlusconi-reglugerðina svokölluðu sem heimilaði einkareknum sjónvarpsstöðvum útsendingar á landsvísu eftir að dómstólar höfðu dæmt þær ólöglegar.
24. október - Ríkisstjórn Eþíópíu óskaði eftir aðstoð umheimsins eftir að miklir þurrkar leiddu til hungursneyðar.
30. október - Samningar tókust milli ríkisins og BSRB en þá hafði allsherjarverkfall staðið frá 4. október.
31. október - Forsætisráðherra Indlands, Indira Gandhi, var myrt af tveimur öryggisvörðum sínum í hefndarskyni fyrir blóðbaðið í Amritsar. Sonur hennar, Rajiv Gandhi, tók við sem forsætisráðherra.