5. janúar - Dreifibréfsmálið: Breskir hermenn gengu í störf verkamanna sem voru í verkfalli. Í kjölfarið varð ósætti og Bretar fangelsuðu menn sem þeir töldu hættulega.
10. mars - Togaranum Reykjaborg RE 64 var sökkt af þýskum kafbáti. Tveir komust lífs af en 13 létust. Þetta var stærsti togari Íslands á þessum tíma og var hann með fiskfarm á leið til Englands [2]
24. maí - Breska herskipinu HMS Hood var sökkt af þýska herskipinu Bismarck vestur af Íslandi. Þremur dögum síðar var Bismarck sökkt af Bretum. yfir 4.000 menn létust í þessum árásum.
1. júní - Þjóðverjar náðu yfirráðum Krít eftir harða mótspyrnu.
22. júní - Barbarossa-aðgerðin: Þjóðverjar réðust inn í Sovétríkin. Ítalía og Rúmenía lýsa einnig á hendur stríði við Sovétríkin.
19. nóvember - Þýska skipið Kormoran sökkti ástralska skipinu HMAS Sydney undan ströndum Vestur-Ástralíu með þeim afleiðingum að 645 létust.
5. desember - Bretland lýsti stríði á hendur Finnlandi, Ungverjalandi og Rúmeníu.
7. desember - Árásin á Perluhöfn: Japan gerði árás á Havaí í Bandaríkjunum, rúmlega 2.400 létust. Daginn eftir lýstu Bandaríkin yfir stríði á hendur Japan. Japanir gerðu innrás í Filippseyjar og Hong Kong stuttu eftir árásina á Havaí.
11. desember - Þýskaland og Ítalía lýstu yfir stríði á hendur Bandaríkjunum.