23. febrúar - Þilskipið Geir frá Hafnarfirði fórst í ofsaveðri á Selvogsbanka og með því 27 manna áhöfn. Í sama veðri tók út fimm menn af skútunni Langanes og einn af Haffara.
15. apríl - Þilskipið Svanur frá Reykjavík fórst í ofviðri á Selvogsbanka og með því 14 af 26 manna áhöfn.
18. október - Ítalía samdi við Ottómanveldið og Ítalsk-tyrkenska stíðið endar.
5. nóvember - Forsetakosningar í Bandaríkjunum. Demókratinn Woodrow Wilson vann stórsigur á William Howard Taft forseta, sem hafnaði í þriðja sæti á eftir Theodore Roosevelt, fyrrum forseta, sem bauð sig fram vegna óánægju margra repúblikana með Taft.