12. maí - Uppreisn gegn Frakklandsstjórn var bæld niður. 50 létust.
3. júní - Fyrra ópíumstríðið hófst þegar ópíum var gert upptækt í Kína. Bretland lýsti stríði á hendur Kína.
2. júní - Daguerreaðferð: Frakkinn Louis Daguerre fékk einkaleyfi fyrir framköllun sinni á ljósmyndum. Franska stjórnin gerði aðferðina löglega fyrir heiminn í september.
31. ágúst - Fyrsta Karlistastríðið endaði á Spáni.