12. maí - Hinrik hertogi af Guise tók völdin í París og Hinrik 3. konungur neyddist til að flýja borgina.
28. maí - Flotinn ósigrandi hélt af stað úr höfnum á Spáni og tók stefnu á Ermarsund. Í flotanum voru 130 herskip og á þeim 30.000 menn. Það tók flotann þrjá daga að láta úr höfn vegna þess hve skipin voru mörg.
23. desember - Hinrik 3. Frakkakonungur réðist til atlögu gegn leiðtogum Kaþólska bandalagsins, hertoganum af Guise og kardínálanum bróður hans, og lét drepa þá.