14. febrúar - Finnur Jónsson settur officialis í Skálholtsbiskupsdæmi og átti hann að gegna störfum biskup þar til nýr biskup hefði verið kjörinn eftir lát Jóns Árnasonar.
17. júlí - Sunnefumál: Sunnefa Jónsdóttir lýsti því yfir á Alþingi að Hans Wium sýslumaður væri faðir að barninu sem hún ól á meðan hún var fangi hans, en ekki Jón bróðir hennar.
16. júní - Austurríska erfðastríðið: Georg 2., konungur Bretlands, leiddi her sinn til sigurs í orrustunni við Dettingen í Bæjaralandi og var hann síðasti breski konungurinn sem sjálfur stýrði her sínum í orrustu. Hann vann þar sigur á frönskum her.