Halastjarna sem kölluð hefur verið Halastjarnan mikla 1577 fór nálægt Jörðu og fylgdust vísindamenn og áhugamenn um alla Evrópu með henni. Þekktastur þeirra var Tycho Brahe, sem gerði miklar mælingar á ferli hennar og setti í framhaldi af því fram kenningar um feril halastjarna.
Listmálarinn El Greco flutti til Spánar og bjó þar til dauðadags.