Terence David John Pratchett | |
Fæddur: | 28. apríl 1948 Beaconsfield, Buckinghamshire, England |
---|---|
Látinn: | 12. mars 2015 Broad Chalke, Wiltshire, England |
Starf/staða: | Skáldsagnahöfundur |
Þjóðerni: | Enskur |
Tegundir bókmennta: | Skopskáldsögur |
Maki/ar: | Lyn Purves 1968–2015 |
Börn: | Rhianna Pratchett |
Heimasíða: | http://www.terrypratchett.co.uk |
Sir Terence David John Pratchett OBE (Order of the British Empire) (28. apríl 1948 - 12. mars 2015) var enskur ævintýrarithöfundur, líklega þekktastur fyrir Discworld bókaröðina. Af öðrum verkum hans má nefna Johnny Maxwell þríleikinn og Bromeliad þríleikinn. Hann vann einnig náið með þeim sem yfirfóru verk hans á önnur form, til dæmis. tölvuleiki og leikrit.
Pratchett hóf að skrifa 13 ára gamall, og 15 ára gamall hafði hann fengið sín fyrstu verk birt opinberlega. Fyrsta skáldsagan hans, The Carpet People, var gefin út 1971. Fyrsta Discworld bókin, The Colour of Magic, kom út 1983, og síðan þá hefur Pratchett skrifað u.þ.b. tvær bækur á ári.
Terry Pratchett var söluhæsti rithöfundur Bretlandseyja á tíunda áratug 20. aldar. Í febrúar 2007 höfðu bækur hans selst í u.þ.b. 50 milljónum eintaka á heimsvísu og verið þýddar á 33 tungumál. Um þessar mundir er Pratchett næstmest lesni rithöfundurinn í Bretlandi, og í sjöunda sæti yfir erlenda rithöfunda í Bandaríkjunum. Lesendahópi Pratchetts er oft lýst sem "költ" (e. cult).
Þann 13. desember 2007 var það tilkynnt að Terry Pratchett væri með Alzheimer sjúkdóminn og lést hann af honum 12 mars 2015
Mál og Menning gaf út ,,Flóttinn" (e. Truckers) árið 1997 og ,,Undir berum himni" (e. Diggers) árið 2000 í ritröðinni ,,Ævintýri Nálfanna". Báðar bækurnar eru í þýðingu Þorgerðar Jörundsdóttur (f.1969).
Tónleikur gaf út ,,Litbrigði galdranna" (e. The Colour of Magic) árið 2007 í þýðingu Jóns Daníelssonar (f.1949) og Furðuljósið árið eftir.
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð setti upp Örlagasystur eftir bók Terry Pratchett, Wyrd Systers, árið 2003 í Austurbæ. Leikgerðin, sem er eftir Stephen Briggs, var þýdd af Gunnari Frey Steinssyni. Leikstjórar voru Atli Rafn Sigurðsson og Brynhildur Guðjónsdóttir.
Nr. | Titill | Útgefið | Undirflokkun | Íslensk þýðing | Athugasemdir |
---|---|---|---|---|---|
1 | The Colour of Magic | 1983 | Rincewind | Litbrigði galdranna | |
2 | The Light Fantastic | 1986 | Furðuljósið | Framhald af The Colour of Magic | |
3 | Equal Rites | 1987 | Witches | ||
4 | Mort | Death | |||
5 | Sourcery | 1988 | Rincewind | ||
6 | Wyrd Sisters | Witches | |||
7 | Pyramids | 1989 | Djelibeybi | Vinningshafi í British Science Fiction Award, 1989[1] | |
8 | Guards! Guards! | City Watch | |||
9 | Eric | 1990 | Rincewind | Einnig gefin út í stærra broti og myndskreytt af Josh Kirby | |
10 | Moving Pictures | Iðnaðarbylting | |||
11 | Reaper Man | 1991 | Death | ||
12 | Witches Abroad | Witches | |||
13 | Small Gods | 1992 | Omnia | ||
14 | Lords and Ladies | Witches | |||
15 | Men at Arms | 1993 | City Watch | 148da í Big Read | |
16 | Soul Music | 1994 | Death | ||
17 | Interesting Times | Rincewind | |||
18 | Maskerade | 1995 | Witches | ||
19 | Feet of Clay | 1996 | City Watch | ||
20 | Hogfather | Death | 137da í Big Read; tilnefnd til British Fantasy Award, 1997[2] | ||
21 | Jingo | 1997 | City Watch | ||
22 | The Last Continent | 1998 | Rincewind | ||
23 | Carpe Jugulum | Witches | |||
24 | The Fifth Elephant | 1999 | City Watch | 153ja í Big Read; Locus Fantasy Award nominee, 2000[3] | |
25 | The Truth | 2000 | Iðnbylting | 193ja í Big Read | |
26 | Thief of Time | 2001 | Death | 152ur í Big Read; tilnefnd til Locus Award, 2002[4] | |
27 | The Last Hero | Rincewind | Einnig gefin út í stærra broti og myndskreytt af Paul Kidby | ||
28 | The Amazing Maurice and his Educated Rodents | Überwald | Er "YA" (young adult- unglinga eða barna) Discworld bók; vinningshafi 2001 Carnegie Medal | ||
29 | Night Watch | 2002 | City Watch | Fékk Prometheus Award 2003; var 73ja í Big Read; tilnefnd til Locus Award, 2003[5] | |
30 | The Wee Free Men | 2003 | Tiffany Aching | Önnur "YA" Discworld bókin; einnig útgefin í stærra broti og myndskreytt af Stephen Player | |
31 | Monstrous Regiment | Iðnbylting | Titillinn er tilvísun í The First Blast of the Trumpet Against the Monstruous Regiment of Women;[6] 2004 nominee for Locus Award for Best Fantasy Novel.[7] | ||
32 | A Hat Full of Sky | 2004 | Tiffany Aching | Þriðja "YA" Discworld bókin | |
33 | Going Postal | Moist von Lipwig | Tilnefnd til Locus og Nebula Awards, 2005[8] | ||
34 | Thud! | 2005 | City Watch | Tilnefnd til Locus Award, 2006[9] | |
35 | Wintersmith | 2006 | Tiffany Aching | Fjórða YA bókin. | |
36 | Making Money | 2007 | Moist von Lipwig | Vann Locus Award, tilnefnd til Nebula, 2008[10] | |
37 | Unseen Academicals | 2009 | Rincewind | Locus Award Nominee, 2010 | |
38 | I Shall Wear Midnight | 2010 | Tiffany Aching | Fimmta YA bókin, Andre Norton vinningshafi, 2010[11] | |
39 | Snuff | 2011 | City Watch | Þriðja söluhæsta bók fyrstu viku útgáfu[12] | |
40 | Raising Steam | 2013 | Moist von Lipwig | ||
41 | The Shepherd's Crown | 2015 | Tiffany Aching | Lokið við um mitt ár-2014 og gefin út eftir andlát 2015[13] |
Pratchett skrifaði og vann einnig með öðrum höfundum fjölda annarra Discworld bóka sem eru ekki eiginlegar skáldsögur.
Það er einnig nokkuð af smásögum eftir Pratchett byggðar á Discworld, svo sem sagan af sagan af uppruna skáldaða leiknum Thud. Allar eru í safninu ("anthology") A Blink of the Screen (2012) eins og í eftirfarandi ritum:
Sjö smásögur voru einnig í safni af styttri verkum (meirihluta) Pratchetts, sem heitir Once More* With Footnotes (2004).
Að auki, er ein smásaga "Turntables of the Night" (1989) látin gerast í Englandi en með Death sem persónu; fánaleg á netinu og í báðum söfnunum.
Þó að Terry Pratchett hafi sagt, "There are no maps. You can't map a sense of humour,"[18] þá eru fjögur "Mapps" (korrt): The Streets of Ankh-Morpork (1993), The Discworld Mapp (1995), A Tourist Guide to Lancre (1998), og Death's Domain (1999).Fyrstu tvö voru teiknuð af Stephen Player, byggð á plans by Pratchett og Stephen Briggs, þriðja er samvinna Briggs and Kidby, og það síðasta er eftir Paul Kidby. Öll innihalda bæklinga skrifaða af Pratchett og Briggs.
Pratchett vann einnig með Ian Stewart og Jack Cohen við fjórar bækur, og notuðu Diskheim til að lýsa almennum viðfangsefnum vísinda. Í hverri bók skiftast á kaflar af Discworld sögu og útskýringum á vísindinum sem tengjast henni. Bækurnar eru:
David Langford hefur sett saman tvær Discworld ("quiz") þrauta bækur:
Aðrar Discworld útgáfur eru:
Á ensku heitir serían The Nome Trilogy eða The Bromeliad Trilogy
Nr | Titill | Útgefið | Íslensk þýðing | Athugasemdir |
---|---|---|---|---|
1 | Truckers | 1989 | Flóttinn (1997) | |
2 | Diggers | 1990 | Undir berum himni (2000) | |
3 | Wings | 1990 |
Nr | Titill | Útgefið | Athugasemdir |
---|---|---|---|
1 | Only You Can Save Mankind | 1992 | |
2 | Johnny and the Dead | 1993 | |
3 | Johnny and the Bomb | 1996 |
Sería sem var sameiginlegt verk Terry Pratchetts og Stephen Baxters
Nr | Titill | Útgefið | Athugasemdir |
---|---|---|---|
1 | The Long Earth | 2012 | |
2 | The Long War | 2013 | |
3 | The Long Mars | 2014 | |
4 | The Long Utopia | 2015 | |
5 | The Long Cosmos | 2016 |
Titill | Útgefið | Meðhöfundur | Íslensk þýðing | Athugasemdir |
---|---|---|---|---|
The Carpet People | 1971 | |||
Dark Side of the Sun | 1976 | |||
Strata | 1981 | |||
The Unadulterated Cat | 1989 | |||
Good Omens | 1990 | Neil Gaiman | ||
Nation | 2008 | |||
Dodger | 2012 | |||
Jack Dodger's Guide to London | 2013 |