Rumen Radev Румен Радев | |
---|---|
Forseti Búlgaríu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 22. janúar 2017 | |
Forsætisráðherra | Bojko Borisov Ognjan Gerdzhikov (starfandi) Bojko Borisov Stefan Janev (starfandi) Kiril Petkov Galab Donev Níkolaj Denkov |
Varaforseti | Ílíjana Jotova |
Forveri | Rosen Plevneliev |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 18. júní 1963 Dimitrovgrad, Búlgaríu |
Þjóðerni | Búlgarskur |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn (1990–) Kommúnistaflokkur Búlgaríu (1980–1990) |
Maki | Ginka Radeva (g. 1996; sk. 2014) Desislava Radeva (g. 2016) |
Börn | 2 |
Háskóli | Búlgarski flugherskólinn Rakovski-hernaðarháskólinn |
Rumen Georgiev Radev (búlgarska: Румен Георгиев Радев; f. 18. júní 1963) er búlgarskur herforingi og stjórnmálamaður sem hefur verið forseti Búlgaríu frá árinu 2017.
Rumen Radev var hermaður í búlgarska flughernum frá 1987 til 2016. Hann var orrustuflugmaður og náði tign majór-hershöfðingja. Hann stýrði búlgarska flughernum frá 2014 til 2016.[1]
Radev bauð sig fram til forseta Búlgaríu með stuðningi búlgarska Sósíalistaflokksins í forsetakosningum landsins árið 2016. Hann lenti í fyrsta sæti með 25,4 % atkvæða í fyrri umferð kosninganna, á undan helsta keppinauti sínum, þingforsetanum Tsetsku Tsatsjeva, sem naut stuðnings GERB-flokksins, sitjandi stjórnarflokks landsins.[2] Radev vann sigur í annarri umferð kosninganna með 59,4 % atkvæðanna á móti 36,2 % atkvæðum Tsatsjeva og 4,5 % auðum atkvæðum.[3][4]
Radev sór embættiseið þann 19. janúar 2017 og tók við embættinu þremur dögum síðar.[5][6]
Kjör Radevs til forseta leiddi til þess að forsætisráðherrann Bojko Borisov úr GERB-flokknum, sem hafði stutt mótframbjóðanda hans í kosningunum, bauð Radev afsögn sína.[7] Radev útnefndi því Ognjan Gerdzhikov forsætisráðherra starfsstjórnar fram að þingkosningum í mars 2017.[8] Þær kosningar enduðu með sigri mið-hægriflokka og því sneri Borisov aftur á forsætisráðherrastól.[9]
Radev hefur átt í deilum við Borisov frá upphafi forsetatíðar sinnar. Hann hefur meðal annars gagnrýnt hann fyrir að leyfa spillingu að blómstra í Búlgaríu, fyrir „glannalegar forystuaðferðir“ hans og fyrir að reyna að kæfa stjórnarandstöðuna. Vegna deilna þeirra hefur Radev margoft beitt neitunarvaldi sínu gegn lagafrumvörpum Borisovs og GERB-flokksins, alls nítján sinnum á fyrstu tveimur og hálfu ári forsetatíðar sinnar.[10][11][12][13] Á móti hefur Borisov sakað Radev um að vinna skemmdarverk á starfsemi ríkisstjórnarinnar og um að vera Sósíalistaflokknum vilhallur á kosningatímabilum.[14][15]
Í júlí 2020 lét ákæruvaldið gera húsleit hjá embætti forsetans og setti nokkra ráðgjafa Radevs í varðhald. Víða var litið á þetta sem valdníðslu og pólitíska aðför Borisovs gegn Radev og atvikið leiddi til fjöldamótmæla gegn ríkisstjórninni. Radev studdi mótmælin opinberlega og kallaði eftir afsögn Borisovs og stjórnar hans, sem hann kallaði „mafíu“.[16]
Þegar Borisov baðst lausnar eftir ósigur GERB í þingkosningum í apríl árið 2021 veitti Radev þremur aðilum stjórnarmyndunarumboð hverjum á fætur öðrum en þeim mistókst öllum að mynda stjórn. Þetta leiddi til þess að þing var rofið á ný og aftur gengið til kosninga þann 11. júlí 2021 og Radev skipaði Stefan Janev forsætisráðherra starfsstjórnar í millitíðinni.[17] Ekki tókst að leysa úr stjórnarkreppunni eftir kosningarnar í júlí og því varð Radev að rjúfa þing og kalla til þriðju kosninganna á einu ári þann 14. nóvember 2021.[18]
Radev bauð sig fram til endurkjörs í forsetakosningum ársins 2021, en fyrri umferð þeirra fór fram samhliða þriðju þingkosningum ársins. Helsti keppinautur hans í kosningunum var Anastas Gerdzhikov, sem naut stuðnings GERB.[19] Radev vann í annarri umferð kosninganna með 66,7 prósentum atkvæða.[20]
Fyrirrennari: Rosen Plevneliev |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |