Munnurinn er fremsti hluti meltingarfæra dýra. Lífverur nærast um munn en hann auðveldar einnig raddbeitingu. Í munninum eru gjarnan tennur sem mylja og elta fæðuna. Munnvatnskirtlar sjá um að bleyta fæðuna og auðvelda för hennar niður meltingarfærin. Í henni eru meltingarensím. Tungan sér um að grípa um fæðuna og beina henni undir tannfletina. Aftast skilur úfurinn kokið frá munni. Munnur ólíkra dýrategunda er töluvert frábrugðinn öðrum.
Höfuð | |
---|---|
Háls | |
Búkur | Axlir • Hryggsúla • Brjóstkassi • Brjóst • Rif • Mitti • Kviðarhol • Nafli • Mjöðm • Endaþarmsop • Rass • Kviður |
Kynfæri | |
Útlimir |