Aldurstakmark eru viðmið eða lög um kvikmyndir ætluð til þess að gera áhorfendum ljóst hvers kyns efni á er að líta eða hvaða aldurshóp kvikmyndin hentar ekki. Aldurstakmörk eru gjarnan sett til þess að vernda blygðunarkennd barna eða vara við efni sem talist gæti ógeðfelt, svo sem ef kvikmynd inniheldur ofbeldi og blót.

Aldurstakmörk á Íslandi

Kvikmyndahús (og áður vídeóleigur) á Íslandi er skylt að fara eftir þeim aldurstakmörkunum sem gefin eru. Margar streymisveitur sem eru aðgengilegar á Íslandi eru með aldurstakmörk.

Saga eftirlits kvikmynda á Íslandi

Árið 1920 hóf Nýja bíó að banna börnum innan sextán ára inngöngu að almennum sýningum og hafa í staðin tvisvar í viku sérstakar barnasýningar með efni sem hæfir þeim betur. Kvikmyndaeftirlit ríkisins var stofnað árið 1932 og starfaði til 1997. Það ár tók Kvikmyndaskoðun við starfseminni og sá um skoðun kvikmynda til ársins 2006. Þá tók SmáÍs við þessari starfssemi.

Klipping kvikmynda

Kvikmyndaeftirlit Ríkisins hafði í undantekningum bannað kvikmyndir, og gaf framleiðendum kost á að leggja fram klippta útgáfu af myndinni, og var þá gefin út með hæsta aldurstakmark. Þegar Kvikmyndaskoðun tók við störfum var þessu alfarið hætt og engar myndir hafa verið klipptar eða bannaðar.

Skýringar á aldurstakmörkum 1997 - 2006

Kvikmyndaskoðun

Skýringar á núgildandi aldurstakmörkum

Núgildandi aldurtakmarkanir tóku gildi 2006:

Skýringar fyrir aldurstakmörkunum gætu verið allt að sex. Þær eru

Aldurstakmörk í Bandaríkjunum

Það eru engin lög í Bandaríkjunum um að kvikmyndir þurfi að vera skoðaðar fyrir sýningu. Hins vegar hefur kvikmyndaeftirlit MPAA orðið svo vinsælt að kvikmyndir eiga erfitt með að hljóta vinsældir án skoðunar þess eftirlits.

Aldurstakmörk MPAA eins og þau eru notuð árið 2007: