Genserik, konungur Vandala, deyr og elsti sonur hans, Hunerik, tekur við konungstigninni.
Ælle (Ella), fyrsti konungur Suður-Saxa, stígur á land á Englandi, samkvæmt Annáli Engilsaxa. Þrátt fyrir mótspyrnu Breta sem fyrir voru á Englandi tekst Söxum að hertaka land og skapa sér fótfestu á eynni.
Armatus, austrómverskur hershöfðingi, er drepinn að fyrirskipan keisarans Zenons vegna stuðnings hans við uppreisn Basiliskosar árið 475.
Houfei Di, keisari Liu Song veldisins í Kína, er myrtur og bróðir hans Shun Di er skipaður keisari í hans stað, 10 ára gamall. Shun Di er sjálfur myrtur tveimur árum síðar og Liu Song veldið líður undir lok.
Shaolin klaustrið er stofnað á hinu helga Song fjalli í núverandi Henan héraði í Kína.