Ágúst - Zenon nær aftur völdum í Austrómverska ríkinu, eftir 20 mánaða útlegð. Basiliskos, sem rændi völdum af Zenon, er sendur í fangelsi í Kappadókíu þar sem hann deyr stuttu síðar úr sulti.
23. ágúst - Ódóvakar, germanskur hershöfðingi, er hylltur sem rex Italiae (konungur Ítalíu) af hermönnum sínum. Ódóvakar heldur völdum yfir Ítalíu til ársins 493.
4. september - Rómúlus Ágústus, síðasti keisari Vestrómverska ríkisins, er rekinn í útlegð af germanska hershöfðingjanum Ódóvakar. Þessi atburður er yfirleitt talinn marka endalok Rómaveldis í Vestur-Evrópu og upphaf miðalda.
Vestgotar ráðast inn í Ítalíu gegn Ódóvakar en bíða ósigur. Zenon, keisari Austrómverska ríkisins, miðlar málum milli deiluaðila, og Ódóvakar skilar Vestgotum svæði í Gallíu sem hann hafði nýlega náð völdum yfir.