Þessi síða lýsir stefnu sem víðtæk sátt er um að fara eftir á íslensku Wikipediu. Ekki breyta henni í ósátt við aðra notendur.

Heimildir eru eitt af undirstöðuatriðum alfræðirits. Heimildir verður að vera hægt að finna fyrir öllu svo hægt sé að taka mark á efni Wikipediu — það þarf að vera hægt að vísa í heimildir fyrir sérhverri staðreynd og fullyrðingu, en ekki síst þeim sem dregnar eru í efa eða líklegt er að verði dregnar í efa. Tilvísun í heimildir tryggir líka að engar frumrannsóknir sé að finna í greinum alfræðiritsins.

Af hverju er mikilvægt að vísa í heimildir?

[breyta frumkóða]

Wikipedia er í eðli sínu samvinnuverkefni fólks með mismikla menntun eða þjálfun og sem býr yfir mismikilli þekkingu. Lesandinn þarf að vera fullviss um að upplýsingarnar í greinum ritsins séu áreiðanlegar: þetta er ekki síst brýnt þegar viðfangsefnið er umdeilt. Wikipedia byggir á þeirri grundvallarreglu að allar gagnlegar upplýsingar sem einhver veit ættu að vera skrifaðar einhvers staðar nú þegar og því er besta leiðin til að styðja upplýsingarnar hér einfaldlega sú að vísa í þá heimild.

Tilgangur heimildatilvísunar er:

Athugið: Aðrar greinar á Wikipediu eru ekki viðeigandi heimildir.

Sjá einnig

[breyta frumkóða]