Surtla var eldstöð um 2,5 kílómetra austnorðaustur af Surtsey, sem gaus í neðansjávareldgosum 28. desember 1964 – 6. janúar 1965. Gosefnin náðu aldrei að hrúgast svo mikið upp að þau kæmust upp á yfirborðið og myndaðist því engin eyja þarna eins og í gosunum í Surtsey, Jólni og Syrtlingi. Minnsta dýpi sem þar mældist var 23 metrar en nú er dýpið þar sem Surtla var 47 metrar.