Rudolf Simek nam þýskar bókmenntir, heimspeki og kaþólska guðfræði í Háskólanum í Vínarborg, og varð síðan bókavörður og dósent þar. Hann hefur kennt við háskólana í Edinborg, Tromsø og Sydney.
Frá 1995 hefur hann verið prófessor í germönskum fræðum við Háskólann í Bonn.
Ritverk (úrval)
Lexikon der germanischen Mythologie, Alfred Kröner, Stuttgart 1984. ISBN 3-520-36801-3 — 3. útgáfa, endursamin: Kröners Taschenausgabe, Band 368, 2006.
Hugtök og heiti í norrænni goðafræði, Heimskringla, Reykjavík 1993, 333 s. — Ingunn Ásdísardóttir þýddi, Heimir Pálsson ritstýrði. Íslensk þýðing á ofangreindu verki.