Rickard Johannes Sandler (29. janúar 1884 – 12. nóvember 1964) var sænskur stjórnmálamaður og forsætisráðherra Svíþjóðar. Hann sat á þingi frá 1912 til 1916 og svo frá 1919 allt til 1964 fyrir Sósíaldemókrataflokkinn. Hann beitti sér fyrir menntun verkamanna, var stofnandi Arbetarnas bildningsförbund(sv) (ABF) árið 1912 og kenndi við alþýðuskólann Brunnsvik.
Sandler tók við embætti forsætisráðherra 24. janúar 1925 þegar Hjalmar Branting, formaður Sósíaldemókrataflokksins, gat ekki lengur gegnt embættinu sökum veikinda. Sandlar var forsætisráðherra til 7. júní 1926. Auk þess að gegna því embætti átti Sandler sæti í öllum ríkisstjórnum sósíaldemókrata á millistríðsárunum. Hann var meðal annars utanríkisráðherra í ríkisstjórnum Per Albin Hansson á fjórða áratugnum, frá 24. september 1932 til 19. júní 1936, og aftur frá 28. september 1936 til 13. desember 1939, þegar hann sagði af sér vegna ágreinings um afstöðuna til hlutleysis í Vetrarstríðinu milli Finnlands og Sovétríkjanna.
Um miðjan desember 1938 flutti Sandler ræðu um utanríkisstefnu smáþjóðanna sem vakti athygli víða um lönd, en þetta var stuttu eftir Kristalsnótt og nokkrum mánuðum áður en seinni heimsstyrjöldin skall á. Ræða Sandlers birtist í fjölmiðlum margra landa, m.a. var kafli úr henni birtur í Tímanum. Eftirfarandi útdráttur er tekinn þaðan:
Forsætisráðherrar Svíþjóðar (listi) | ||
---|---|---|
Frá stofnun ríkisþingsins fram að sambandskreppunni (1876–1905) | Louis De Geer eldri · Arvid Posse · Carl Johan Thyselius · Robert Themptander · Gillis Bildt · Gustaf Åkerhielm · Erik Gustaf Boström · Fredrik von Otter · Erik Gustaf Boström · Johan Ramstedt · Christian Lundeberg | |
Frá endalokum konungssambandsins til fyrri heimsstyrjaldar (1905–1914) | ||
Frá fyrri heimsstyrjöld til seinni heimsstyrjaldar (1914-1945) | Hjalmar Hammarskjöld · Carl Swartz · Nils Edén · Hjalmar Branting · Louis De Geer yngri · Oscar von Sydow · Hjalmar Branting · Ernst Trygger · Hjalmar Branting · Rickard Sandler · Carl Gustaf Ekman · Arvid Lindman · Carl Gustaf Ekman · Felix Hamrin · Per Albin Hansson · Axel Pehrsson-Bramstorp · Per Albin Hansson | |
Kaldastríðsárin (1945–1991) | Östen Undén (til bráðabirgða) · Tage Erlander · Olof Palme · Thorbjörn Fälldin · Ola Ullsten · Thorbjörn Fälldin · Olof Palme · Ingvar Carlsson | |
Frá lokum kalda stríðsins (1991–) | Carl Bildt · Ingvar Carlsson · Göran Persson · Fredrik Reinfeldt · Stefan Löfven · Magdalena Andersson · Ulf Kristersson |