Orlando Gibbons (1583 – 5. júní 1625) var enskt tónskáld, einkum frægur fyrir kammerverk sín fyrir sembal og víólur, madrígala og sálma. Hann fæddist í Oxford. Jakob I gerði hann að organista í Chapel Royal sem þá var í Whitehall árið 1615. Eitt af þekktustu verkum hans er madrígalinn "The Silver Swan" frá 1612.