Börn í lopapeysum með hefðbundnu mynstri.Bolurinn er prjónaður á hringprjóna og síðan klippt ef peysan á að vera hneppt eða með rennilás
Lopapeysa

Lopapeysa er handprjónuð peysa úr íslenskri ull. Hefðbundnar lopapeysur eru í sauðalitum með tvíbönduðu mynstri á hringlaga herðastykki. Þær komu fyrst fram á 6. áratugi 20. aldar en óvíst er hvar og hvernig. Ein tilgáta er að mynstrin séu tilkomin vegna áhrifa frá perlusaumi á grænlenskum kvenbúningum og önnur að þau endurspegli áhrif frá peysum sem farið var að prjóna í Bohusléni í Suður-Svíþjóð á 5. áratugnum.

Sumir vilja eigna frú Auði Laxness hönnun lopapeysunnar, en engar heimildir finnast fyrir því og er því líklega um sögusögn að ræða þótt talið sé að hún hafi ásamt fleirum átt þátt í þróun peysunnar.[1]

Tilvísanir

  1. Soffía Valdimarsdóttir. „Hvað er íslenska lopapeysan gömul og hver er uppruni hennar?“. Vísindavefurinn 23.8.2013. http://visindavefur.is/?id=62896. (Skoðað 23.8.2013).

Heimildir

Tengill

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.