Jamala | |
---|---|
![]() Jamala í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (2016) | |
Upplýsingar | |
Fædd | Susana Alimivna Jamaladinova (Susana Alim qızı Camaladinova) 27. ágúst 1983 |
Uppruni | Osh, kirgíska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum (nú Kirgistan) |
Ár virk | 2001–núverandi |
Stefnur | raf, þjóðlaga, sálar, blús, popptónlist |
Útgefandi | Moon, Enjoy! Records, Universal |
Súsana Alímívna Dzjamaladínova[a] (f. 27. ágúst 1983), betur þekkt undir sviðsnafninu Jamala[b], er úkraínsk söngkona, leikkona og lagahöfundur. Hún tók þátt í og sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2016 fyrir Úkraínu með laginu „1944“. Árin 2017, 2018 og 2019 var hún í dómnefnd Vidbir, undankeppni Eurovision í Úkraínu.
Jamala er Krímtatari og í laginu „1944“ fjallaði hún um nauðungarflutninga Krímtarara frá Krímskaga sem skipaðir voru af stjórn Stalíns árið 1944. Lagið olli nokkrum deilum þar sem Rússar töldu það vera dæmi um pólitískan áróður sem samræmdist ekki reglum Eurovision. Lagið var víða talið fela í sér gagnrýni á nýafstaðna atburði, nánar tiltekið innlimun Rússa á Krímskaga árið 2014.[1]