Eagles | |
---|---|
![]() The Eagles árið 2008 (vinstri til hægri): Glenn Frey, Don Henley, Joe Walsh, Timothy B. Schmit, og (að aftan) trommarinn Scott F. Crago | |
Upplýsingar | |
Uppruni | Los Angeles, Kalifornía, BNA |
Ár |
|
Stefnur |
|
Útgefandi | |
Meðlimir |
|
Fyrri meðlimir |
|
Vefsíða | eagles |
Eagles eru bandarísk hljómsveit. Hún var stofnuð í Los Angeles árið 1971 af Glenn Frey, Don Henley, Bernie Leadon og Randy Meisner.
Þeir unnu Grammy-verðlaunin sex sinnum.[1] Hljómsveitin er í 75. sæti yfir bestu hljómsveitir allra tíma að mati tímaritsins Rolling Stone[2] og á breiðskífu í 37. sæti yfir bestu breiðskífur allra tíma.[3] Þeir eiga jafnframt mest seldu plötu í Bandaríkjunum, Their Greatest Hits 1971-1975.[4]
Eagles hættu í júlí 1980 en tóku aftur saman árið 1994 fyrir breiðskífuna Hell Freezes over. Þeir voru á stífu tónleikaferðalagi síðan þá og komust inn í Rock and Roll Hall of Fame árið 1998.[5] Árið 2007 gáfu þeir út Long Road out of Eden, fyrstu breiðskífu sína í 28 ár. Glenn Frey lést í New York þann 18. janúar 2016 eftir baráttu við veikindi. Eftir andlát Frey ákvað The Eagles að leggja upp laupana árið 2016. Samt sem áður hélt hljómsveitin áfram næsta ár.