Dolly eða Dollý (5. júlí 1996 – 14. febrúar 2003) var sauðkind og fyrsta klónaða spendýrið. Dollý var klónuð í Roslin-stofnuninni í Edinborg, Skotlandi og ól þar sína ævi.[1]
Fruman, sem Dollý var klónuð úr, var tekin úr júgra 6 ára gamallar finnskrar Dorset-kindar.[2] Dollý var eina tilraunin til klónunar sem tókst af samtals 277 tilraunum, sem Roslin-stofnunin framkvæmdi á sauðfé.[3] Fæðing hennar var ekki kynnt fyrr en í febrúar 1997.
Dollý dó 14. febrúar 2003 af mæðiveiki (votamæði)[1] og þann 9. apríl 2003 var hún stoppuð upp og sett til sýnis á Royal-safninu í Edinborg.
Kindin Dollý gekk upprunalega undir dulnefninu 6LL3. Einn aðilanna, sem aðstoðaði við burð kindarinnar, stakk upp á nafninu „Dolly“ í höfuðið á hinni brjóstamiklu kántrísöngkonu Dolly Parton, þar sem fruman, sem Dollý var klónuð úr, kom úr júgra móður hennar.[4][5]
Eftir Dollý hefur orðið ör þróun á sviði klónana. Vísindamenn Roslin-stofnunarinnar hafa síðar klónað stærri spendýr, þ.á m. hesta og nautgripi.[6] Hugmyndir eru um að nota klónun í framtíðinni til að bjarga dýrum í útrýmingarhættu.[7]