Árið 9 (IX í rómverskum tölum) var í gregoríanska tímatalinu almennt ár sem byrjaði á þriðjudegi.
- Illyría er gerð að skattlandi eftir að uppreisn hefur verið kveðin niður.
- Rínarfljót er gert að landamærum milli Rómaveldis og germanskra þjóða eftir ósigur Rómverja gegn Hermanni í Varusarbardaganum.
- Pannónía beygir sig undir rómversk yfirráð.