11. mars - Keisarinn Elagabalus var myrtur ásamt móður sinni Juliu Soaemias af pretóríska verðinum. Lík þeirra voru dregin um götur Rómar og síðan kastað í ána Tíber. Alexander Severus var hylltur sem keisari.
Júlí - Konungsríkið Sun Wu var stofnað í Kína þegar Sun Quan vann sigur á Liu Bei, keisara Shu Han, í orrustunni um Xiaoting.
14. október - Kallixtus 1. páfi var drepinn af æstum múg í Trastevere-hverfinu í Róm. Úrbanus 1. tók við páfadómi.
Silfurinnihald rómverska denarsins var minnkað úr 43% í 35%.