23. júní - Hinni níu ára gömlu Maríu 2. Portúgalsdrottningu steypt af stóli. Miguel föðurbróðir hennar, sem hafði verið ríkisstjóri, tók sér sjálfur konungsnafn. Hófst þá borgarastyrjöld sem stóð til 1834 og lauk með því að María settist í hásætið að nýju.