16. mars - Franski landkönnuðurinn Louis Antoine de Bougainville lauk þriggja ára hnattsiglingu. Í föruneyti hans var Jeanne Baré, fyrsta konan sem vitað er til að hafi siglt umhverfis hnöttinn.
14. maí - Karl 3. Spánarkonungur sendi trúboða til Kaliforníu og var það upphaf landnáms hvítra manna þar.
19. maí - Giovanni Vincenzo Antoniu Ganganelli varð páfi og tók sér nafnið Klemens XIV.
September - Miklir þurrkar í Bengal á Indlandi ollu uppskerubresti sem leiddu árið eftir til gífurlegrar hungursneyðar sem talið er að hafi orðið tíu milljónum manna að bana.