Vor - Claus van der Marwitzen hirðstjóri kom til landsins og hafði fengið hjá konungi umboð yfir Viðeyjarklaustri og skyldi setjast þar að en sjá munkunum og ábótanum fyrir viðurværi.
10. ágúst - Diðrik frá Mynden drepinn í Skálholti ásamt mönnum sínum. Hann var þá á austurleið til að taka undir sig eignir klaustranna í Þykkvabæ og Kirkjubæ.
5. september - Erlendur Þorvarðarson lögmaður kvað upp dóm á Kópavogsþingi um að Diðrik frá Mynden og þeir sem drepnir voru með honum skyldu teljast óbótamenn og þeir sem vegið höfðu að þeim sýknir saka.
30. maí - Hernando de Soto lenti í Tampa Bay í Flórída með 600 manna lið.
10. ágúst - Frans 1. Frakkakonungur undirritaði Villers-Cotterêts-tilskipunina, réttarbót þar sem meðal annars var mælt fyrir um að öll opinber gögn í Frakklandi skyldu vera á frönsku.
Carta marina var prentað í Flórens, fyrsta kortið sem sýndi Norðurlöndin og þar með Ísland nokkuð ítarlega. Það var Svíinn Olaus Magnus sem gerði kortið.
Fædd
5. desember - Fausto Paolo Sozzini, ítalskur guðfræðingur (d. 1604).
Dáin
12. mars - Thomas Boleyn, jarl af Wiltshire, enskur stjórnmálamaður og faðir Önnu Boleyn (f. 1477).
1. maí - Ísabella af Portúgal, drottning Spánar og keisaraynja hins Heilaga rómverska ríkis, kona Karls 5. keisara (f. 1503).