2. febrúar - Rósastríðin: Orrustan við Mortimer's Cross. Herlið York-ættar undir stjórn Játvarðar hertoga af York vann sigur á Lancaster-mönnum sem stýrt var af Owen Tudor og syni hans, Jasper jarli af Pembroke.
17.febrúar - Herlið jarlsins af Warwick beið ósigur fyrir liði Lancaster-manna sem stýrt var af Margréti drottningu. Hún náði þar aftur manni sínum, Hinrik 6., sem York-menn höfðu fangað.
29. mars - Orrustan við Towton, sem talin er blóðugasti bardagi sem háður hefur verið á enskri grund. Þar vann Játvarður 4. sigur á liði Margrétar drottningar.