5. janúar - Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup var í Flórens og veitti Eugenius 4. páfi honum lausn frá biskupsstörfum á Hólum og lét hann fá Skálholt í staðinn, þar sem hafði verið biskupslaust. Þó bentir allt til þess að Gozewijn Comhaer hafi verið vígður Skálholtsbiskup sama ár. Hann fór til Íslands 1437.
Jón Bloxwich varð biskup á Hólum. Hann kom aldrei til Íslands.
21. september - Arras-sáttmálinn á milli Karls 7. Frakkakonungs og Filippusar góða Búrgundarhertoga undirritaður. Þar með lauk bandalagi Búrgundarmanna og Englendinga gegn Frakkakonungi.