Árni Ólafsson Skálholtsbiskup, sem gegndi jafnframt biskupsembætti á Hólum því Jón Tófason, sem skipaður var 1411, kom ekki til landsins fyrr en 1419, reið á einum degi um veturinn á hjarni yfir Kjöl; var við óttusöng í Skálholti um morguninn en kom til Hóla fyrir aftansöng.
Maður að nafni Ívent eða Avant Sasse fór um landið og safnaði peningum fyrir heilagan Antóníus.
Veturinn 1417-1418 var kallaður Bónavetur vegna fjárbóna og álagna sem Árni biskup fylgdi fast eftir, meðal annars fyrir hönd Eiríks konungs af Pommern, sem átti í kosnaðarsömum hernaði.
Fædd
Dáin
Erlendis
19. maí - Jóhann óttalausi, hertogi af Búrgund, hertók París.